Ískápurinn er kominn aftur í hús.
Ekki byrjaði dagurinn skemmtilega. Ég reif mig á fætur áður en ég var almennilega vaknaður til að fara í píanótíma. Mér til algjörrar óánægju komst ég að því að tíminn er ekki fyrr en á morgun.
Sinnti nokkrum erindum samt í skólanum og spjallaði dáldið við Loes og Suzanne áður en ég fór heim.
Ivan kom með skápinn upp úr 3. Auðveldlega komum við honum fyrir á réttan stað og að launum fyrir lánið gaf hann mér 4 belgíska bjóra og 2 falleg bjórglös.
Æfði mig slatta heima og keypti The best of Not the 9 o´clock news á gjafvirði.
Ég lagði mig svo um klukkan hálf sex og svaf í örugglega einn og hálfan tíma. Þegar ég vaknaði ætlaði ég að hleypa sólarbirtunni inn um myndarlegu gluggana en nei, blasti ekki við mér dómsdags haglél og hávaði úr nærliggjandi eldingum.
Ég beið þolinmóður þess að veðrinu slotaði svo ég kæmist óhultur í skólann. Það rættist. Veðrinu slotaði. En bara í 3 mínútur. Ég hjólaði mest alla leiðina í ógeðslegri rigningu sem náði inn á nærbuxurnar. En bleytan virðist hafa haft góð áhrif á heilann. Ég náði að æfa mig mjög vel og hljómaði frábærlega, sambærilegt við fyrir aðgerð.
Síðasta klukkutímanum eyddi ég með Jan og Johan þar sem við spiluðum tríó. Svo var það Lusthof í kók og svo heim í kók og kebab.
og nú er ég búinn
Monday, June 25, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
er tríó eitthvað spil?
Það er hollt að vanda! - Nóg sól í Grikklandi ....
Tríó er form af tónlistarhóp þar sem 3 spila saman.
já, það er rétt
Post a Comment