Merkur dagur í dag. André og Rolf útskrifuðust báðir með Bachelor gráðu í bassabásúnuleik. André var með frábæra tónleika með fjölbreytilegu verkefnavali, frá Bach til Thelanus Monk. Rolf með öllu klassískara prógram og formlegra í alla staði. En hundleiðinlegt. En hann skilaði sínu ágætlega.
Í tilefni af útskrift André bauð faðir hans mér ásamt fjölskyldu hans út að borða á Solo. 6 rétta máltíð með víni og öllu. Auk André og föður hans voru þarna mágkona André, systir hans og bróðir. Samtals 6. Og við vorum þar í rúma 6 klukkutíma. Eiginlega að verða 7.
Síðasta kvöldið sem pabbi var hér hjá mér fórum við á tónleika með Martin Fröst og Roland Pöntinen. Þeir voru æðislegir. 2 virtúósar skiluðu öllu sínu og meira til. Framsetning tónleikana var frumleg og hélt maður athyglinni allan tímann. Ég spjallaði svo aðeins við Pöntinen að tónleikum loknum og lofaði honum víst að flytja verk hans fyrir básúnu og píanó á útskriftartónleikunum mínum. Verk sem hann samdi fyrir Christian Lindberg. Mjög fallegt verk. Fer ansi hátt, en við því er að búast þegar samið er fyrir Christian.
Í gærkvöldi var mér boðið í heimsókn til Rósu, samnemanda míns. Hún er frá 4 þjóðum held ég. Armeníu, Afganistan, Hollandi og Póllandi. Armenskir vinir foreldra hennar voru í heimsókn hjá henni og komst ég að því, mér til mikillar gleði, að Ari þýðir komdu á Armensku.
Grímur sannaði enn og aftur Jazz genið í sér þegar hann ruglaðist á dagsetningum á fluginu sínu til Amsterdam. Hann sagðist myndu koma á fimmtudegi en svo kemur í ljós að flugið er ekki fyrr en á laugardag. Einhvers staðar í bernsku hefur hann ruglað saman 7 og 9. En hann kemur sem sagt, vonandi, á laugardaginn.
Á morgun er fyrsti tíminn minn með Ivan í tæpan mánuð. Ég náði aðeins að spila á munnstykkið í dag og á morgun spreyti ég mig á básúnunni. Annað kvöld ætla ég svo á Concertgebouw hljómsveitina með Loes og Jonatan. Á efnisskránni er meðal annars Symphonic Metamerposis eftir Hindemith og Eldfuglinn eftir Stravinsky. Kenneth fór á tónleikana í dag og hann var mjög sáttur. Meira að segja tréblásararnir spiluðu hreint. Þá er nú mikið sagt.
Ég ætla að reyna að koma mér á fætur fyrir hádegi á morgun. Það eru inntökupróf í hljómsveitarstjórn sem mig langar aðeins til að fylgjast með áður en tíminn minn er. En til þess að það takist þarf ég víst að fara að sofa.
Guten nachten
Friday, June 8, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Lagaði bara að kvitta ;) Greinilega alltaf jafn mikið tónlistarlíf þarna hjá ykkur... kannski ekki við öðru að búast :)
Gott að þú ert farinn að skrifa á ný - móðir þín var farin að ryðga í tónlistarlífinu í Amsterdam!
Artu daujur?
Post a Comment