Saturday, June 16, 2007

Of stórt

Í gærkvöldi fórum við Grímur á tónleika með Concertgebouw. Messa númer 3 eftir Bruckner var á efnisskránni. Hljómsveitin spilaði svo sem ágætlega en ég var mjög óánægður með hljóðfærin sem básúnudeildin spilaði á. Raymond gerði reyndar vel í því að spila bassapartinn á tenor með ventli. En Ivan og Bart fóru með það með því að spila efri partana á jafnstór hljóðfæri. Best hefði verið að Bart hefði spilað á small-bore tenor og Ivan á alt. Básúnusándið var einfaldlega allt of mikið í samanburði við það það sem var að gerast í hljómsveitinni.

Og nú er ég orðin pirraður við að rifja upp þessi stórmistök,

3 comments:

Anonymous said...

Ekki hafa þessar áhyggjur drengur. Þetta skiptir ENGU máli!! -

Verst að þú sért ekki bara með í grillinu.

Anonymous said...

Rangt, þetta skiptir öllu máli. Það verður að spila á þau hljóðfæri sem stíllinn kallar á. Sníða verður stakk eftir vexti.

Anonymous said...

Gleðilega þjóðhátíð!