Í tilefni af einu versta veðri sem ég hef upplifað í Hollandi þá ákvað ég að panta mér Domino´s pizzu. Er enn að bíða.
Í dag var 4ra klst tími með Ivan. Ég og Johan mættum. Vorum mest að spila æfingar og gantast. En einnig spilaði ég í gegnum prógrammið mitt fyrir tónleikana. Og eins og venjulega bað Ivan mig um að vera aðeins raunsærri í spilamennsku minni. "Listen to your own sound, not the sound of your dreams."
Ég náði að koma Ivan verulega á óvart með kunnáttu minni á falset nótunum á básúnunni. Gott fyrir sjálfstraustið að geta gert eitthvað sem kennarinn manns getur ekki. Og Ivan var svo ánægður með að geta fengið nýja áskorun, fyrst hann getur eiginlega allt annað.
Síðustu tónleikar Ivans sem básúnuleikari í Concertgebouw hljómsveitinni verða í kvöld. Ég ætla ekki á þá. En ég ætla í partýið á eftir. Ókeypis bjór á Lusthof.
Ivan kom við hjá mér í dag og fékk lánaðan ískápinn hér á Bloemgracht. Tilefnið er bjórpartý sem hann mun halda um helgina og hann vantaði auka pláss fyrir drykkjarföngin.
Síðan ég kom heim um hálf 2 hef ég bara legið í leti. Horft á sjónvarpsþætti á netinu og sofið. En fyrir hálftíma tók ég básúnuna upp og spilaði smá til að hreinsa samviskuna.
Úff, er orðinn glorhungraður,
tjá
Friday, June 22, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Kom pizzan?
Erum að horfa á Sevilla og Gedafe. Frábær leikur. - Söknum þín bara svo hræðilega. Vantar tilfinningaofsann!
Post a Comment