Enn er rigning í Amsterdam. Ég væri nú alveg til í að fara í langan hjólatúr en það meikar ekki sens í svona veðri. Eyði dögunum með varirnar á hljóðfærinu eða með augun á tölvuskjánum. Er búinn að horfa á slatta af Star Trek þáttum af netinu.
Mig langar í Lasagna í kvöldmat. Reyni kannski að hitta einhvern í kvöld en annars er svo sem fínt að vera einn. Stundum verð ég reyndar ansi einmana en er yfirleitt fljótur að rífa mig upp úr því.
Skólinn er mjög tómlegur þessa dagana. Langflestir nemendurnir eru farnir til síns heima. Engin vandræði með að æfa sig í skólanum þessa dagana. En skiptir mig svo sem litlu máli þar sem mér finnst betra að æfa mig heima hjá mér.
Var að lesa að Heiðar Helguson sé hættur að gefa kost á sér í enska landsliðið. Ástæðan sem hann gefur er sú að hann vilji draga úr álagi. Þessi rök finnst mér ekki mjög góð þar sem fjöldi landsleikja hjá íslenska landsliðinu er með minnsta móti. Það er gífurlegt áfall að jafn góður leikmaður og Heiðar sé hættur með landsliðinu.
Nú virðist það vera staðfest að Henry sé kominn til Barcelona. En sú framlína. Ronaldinho, Eto, Henry og Messi.
Mér finnst líklegt að Barcelona muni skipta um leikkerfi á næsta ári og síðan eru þeir búnir að gefa það út að Deco gæti verið seldur ef rétt verð býðst, þessar sögusagnir eru samt ekki staðfestar.
Ég flýg til Corfu eftir innan við viku. Dáldið óraunverulegt núna. Verð fyrst að klára þau verkefni sem ég verð að klára hér. Hlakka dáldið til samt þó að það sé smá beygur í mér vegna mikils hita sem er þar þessa stundina. En það sem drepur mann ekki gerir mann aðeins sterkari.
En nú er kominn tími fyrir meira Star Trek
Sunday, June 24, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Enska eða íslenska landsliðinu? -
Þú átt eftir að njóta þess að sitja í skugganum á Korfu með ískalt hvítvín ... mmmmmmmmmmmmmmm
Einveran hefur greinilega áhrif á sjón manns. auðvitað er það íslenska landsliðið
Hann er löööngu hættur í enska liðinu, leiðinlegt samt, hann er bölvaður jaxl!
Post a Comment