Monday, May 5, 2008

Enn einn frídagurinn

Í gærkvöldi spilaði ég á minningarathöfn vegna seinni heimstyrjaldarinnar, það gekk bara nokkuð vel og til gamans má geta að ég fékk borgað fyrir herlegheitin. Ekkert mikið en ásættanlegt.

En í dag 5. maí er einhvers konar frelsishátíð þar sem fagnað er því að Þjóðverjar eru víst hættir að hernema Holland. Það þýðir að skólinn er lokaður sem er farið að fara verulega í taugarnar á mér. Í síðustu viku var hann lokaður miðvikudag og fimmtudag og núna aftur nokkrum dögum síðar, þetta kemur að sjálfsögðu ofan á þessar tvær vikur sem skólinn var lokaður í apríl.

Jæja, það þýðir svo sem ekki að væla yfir þessu eins og öðru.

Ég varð fyrir því óláni í gær, rétt áður en ég átti að spila að gormurinn á ventlinum á básúnunni minni slitnaði og þarf ég að fá nýjan gorm. Ég veit ekki hvar ég kemst í hljóðfæraverkstæði hér í Amsterdam og það er eflaust lokað í dag eins og flest annað. Þetta kemur náttúrulega að sjálfsögðu á versta tíma því nú eru innan við 2 vikur þangað til ég á að spila sóló með SÁ og hljóðfærið bilað.

Alltaf skal eitthvað koma uppá stuttu fyrir tónleika sem gerir mig ótrúlega stressaðan.

Um helgina var skemmtilegt kvikmynda maraþon á Veronica sjónvarpstöðinni, það var The Matrix maraþon og líka Keanu Reeves maraþon. Allar þrjár Matrix myndirnar og Constantine. Hafði nú séð þær allar áður en það var mjög gott að sjá seinni matrix myndirnar aftur því þær eru ansi ruglingslegar og veitir ekki af því að sjá þær aftur.

Mér finnst ótrúlega undarlegt að vera ekki að vinna að neinu greiningarverkefni eins og er. Maður verður nett háður þessu en ég er að reyna að einbeita mér meira að básúnunni þessa dagana, eins og skiljanlegt er.

Jæja, best að gera eitthvað að viti ;)

1 comment:

Anonymous said...

Hvenær sefur fólk eiginlega í Hollandi?