Sunday, May 25, 2008

Ferðinni lokið

Jæja, nú verð ég að byrja á að afsaka bloggleti mína undanfarið en ég hef ekki haft sérlega mikið af lausum stundum.

Þessar undanfarnar tvær vikur hafa verið hreint út sagt frábærar. Fyrri vikan fór þó að mestu í það að æfa sig marga klukkutíma á dag til að undirbúa Larsson konsertinn.

Síðasta sunnudag spilaði ég svo loksins konsertinn með Sinfóníuhljómsveit Áhugamanna og var látið mjög vel af flutningi mínum og eiginlega komu viðtökurnar mér dáldið í opna skjöldu og var þetta mjög mikið búst í sjálfstraust mitt.

Síðari vikan fór svo að mestu fram niður í háskólabíói þar sem ég mætti á allar æfingarnar og svo á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands með stjórnandanum Christian Lindberg og einleikaranum Charlie Vernon. Það að umgangast þessa gaura sem hafa afrekað nærri allt sem hægt er að afreka á sínu sviði er svo gefandi. Ég og Christian höfum verið miklir mátar í þó nokkurn tíma en ég hafði aldrei áður hitt Charlie og var mjög gaman að kynnast honum.

Þeir sem mættu á tónleikana og að þeir sem voru að spila voru nær á einu máli að tónleikarnir hefðu verið með þeim bestu á þessu tímabili og ófáir aðilar sögðu að giggið hefði nú sómað sér mun betur sem flaggskip listahátíðar heldur en sem hefðbundir gulrar raðar tónleikar sem fram fóru á Evróvísjón kvöldi.

Fjarri tónlistarheiminum þá náði ég að eyða nokkrum tíma með Katrínu líka og er hún ótrúlega mikilvæg fyrir mig að því leyti að hún nennir ekkert að hlusta á mig tala um tónlist. Það er alltaf rosalega notalegt að vera með henni, hvort sem verið sé að horfa á mynd, labba í rigningunni eða borða ís, sem hún reyndar á það til að einoka aðeins eins og kvenfólk á nú til að gera. ;)

En nú þarf ég að pakka, sigli til Amsterdam á morgun.

Ari

Nú ætti ég hins vegar að fara að pakka, flug eldsnemma í fyrramálið.

1 comment:

Anonymous said...

Hæ - dómur um tónleikana í gulu röðinni:


http://mbl.is/bladid/askr/a5cfb-030a-d1b2f,2008-05-28,A2008-05-28.pdf