Sem stendur er ég á Íslandi til að spila konsert með Sinfóníuhljómsveit Áhugamanna. Tónleikarnir eru næstkomandi sunnudag og byrja klukkan 17:00 í Seltjarnarneskirkju.
Ég mætti á æfingu með hljómsveitinni í gær og þetta lofar bara mjög góðu og verður ljómandi skemmtun bæði fyrir spilara og áheyrendur.
Fyrir utan það er þetta tilvalin upphitun fyrir tónleika Sinfóníunnar í næstu viku en þá verður Christian Lindberg að stjórna og Charlie Vernon, bassabásúnuleikarinn í Chicago Sinfóníunni, spilar konsert. Ég hef heyrt konsertinn áður og er hann á mjög háum standardi bæði sem show off konsert en einnig sem einlæg tónsmíð.
Jæja, ætla að rölta niður í skóla og æfa mig, eða kannski keyri ég bara. Maður verður eiginlega að nýta sér það að hafa aðgang að bíl ;)
Wednesday, May 14, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment