Tuesday, June 23, 2009

eyjulíf

Þegar ég vaknaði í dag þá tók ég þá velhugsuðu ákvörðun að fara ekki í skólann og byrja að vinna að tölvusetningu Márívísunnar eftir pabba, sjitt hvað ég er úr formi. Ég man þegar ég var að vinna sem mest fyrir íslenska tónlistardaginn og gat hæglega setið fyrir framan tölvuna í 16 klukkustundir og í Finale í 10 klukkustundir, nú tek ég mér reglulega frí og rétt næ að vera hálftíma í einu.

Það er reyndar allt í lagi, formið kemur smám saman aftur. Ég geri mér líka auðveldara með því að horfa á eina af uppáhaldsmyndunum mínum, About a boy með Hugh Grant. Eina myndin sem hefur haft einhver áhrif á fatastíl minn og ein af þeim myndum sem ég get horft á aftur og aftur.

Það er einhver gríðarleg ánægja sem fylgir því hjá mér að vera heima hjá mér og vinna að einhverju verkefni, grípa svo til bókalesturs eða myndagláps eða jafnvel heilsubótargöngutúrs þegar ég þarf á að halda. Af þeim sökum þá hlakka ég dáldið til þegar skólinn verður alveg búinn og ég verð einn eftir í íbúðinni og get gleymt mér í vinnu og litið upp inná milli og hitt vini mína.

Jæja, best að reyna að halda áfram.

1 comment:

Anonymous said...

Þú kíkir kannski í fatabúðir til að halda stílnum!

Helga