Saturday, July 18, 2009

Bruno

Skellti mér á Bruno í gær, hló mig máttlausan oftar en tvisvar. Hún er reyndar alls ekki fyrir viðkvæma en hann Sacha Baron Cohen sýnir enn og aftur að hann er algjör snillingur. Hvernig honum tekst að ganga fram af fólki aftur og aftur er þvílík gjöf að unun er að fylgjast með. Hann kemur fólki í þær aðstöður að það segir eitthvað sem það hefði annars aldrei sagt, hann fer til dæmis á sjálfsvarnarnámskeið hjá karatekennara og vill láta hjálpa sér að verja sjálfan sig gegn árásum samkynhneigðra.

Hvernig er best að verjast árasamanni sem kemur aftan að manni með tvö gervityppi?

Hvernig Sacha tekst að blanda saman leik og óleik er aðdáunarvert.

En já, að lokinni myndinni þá fann ég fyrir hungurverkum og mig langaði í steik. Gekk á fyrsta argentíska steikarhúsið sem ég fann, ja fyrsta sem ég hafði efni á, og gekk þar inn. Steikin var nú alls ekki sú besta sem ég hef fengið, en gott að borða kjöt og gengilbeinan var bara ansi myndarleg þrátt fyrir spangirnar.

En þar sem ég var einn á ferðinni þá datt mér í hug að fara í smá vettvangsrannsókn á hommabar, og þann flottasta í amsterdam. Ég sá reyndar fljótlega að það var voða lítið vit í þessu fyrir mig þrátt fyrir að einn barþjónninn var kvenkyns og með mjög girnilegan barm, hún leit ekki við mér og gekk þar með í hópinn með öllum gestum staðarins.

Ég greinilega hef ekki samkynhneigða genið í mér en ég verð að játa að á staðnum fékk ég besta gin og tónik síðan ég man eftir mér, það kostaði reyndar sitt, greinilega reynt að halda fólki frá staðnum sem er ekki partur af hópnum. Þetta var samt spennandi, sérstaklega vegna þess að ég var nýbúinn að sjá Bruno.

Í kvöld mun ég þó fara í partý þar sem ég býst við að kynhormónarnir verða nærstilltari mínum radíus.

En annars fór ég með tenorinn minn í bað áðan, ja sturtu til að vera nákvæmur. Tók hann algjörlega í sundur og skrúbbaði innan sem utan.

Á mánudaginn mun Hamrahlíðakórinn vera með tónleika í Utrecht, ég ætla að fara. Að sjálfsögðu fer ég, þau eru að syngja á Europa Cantat sem er að ég held stærsta kórahátíð í Evrópu. Held ég þekki enn einhverja sem eru að syngja þannig að þetta ætti að verða gaman. En ég frétti að kórinn muni halda í þá hefð að stúlkurnar verði í íslenska þjóðbúningnum, það verður skondið að sjá. Held ég hafi aldrei séð stelpu í íslenska þjóðbúningnum nema einu sinni á árbæjarsafni.

Þó ég haldi að það sé nú nærtækara að íslenski þjóðbúningurinn verði stuttermabolur merktur Sigur Rós.

Lifið heil!

No comments: