Jæja, þá fer ég að hitta fjölskyldu mína í Danmörku á morgun. Er búinn að eyða deginum í að undirbúa brottför mína með ýmiskonar tiltektar kúnstum. Þurfti líka smá að skjótast til að prenta smá, fór með skjölin á iPodnum mínum en nú virðist sem tölvan sem ég hafi notast við til að prenta út hafi verið sýkt. Allavega brjálaðist vírusarvörnin þegar ég stakk tónhlöðunni í samband núna áðan, verð að láta að kíkja á gripinn við tækifæri.
Ég kláraði The Return of the King áðan, tók mig 3 daga að horfa á allar myndirnar. Grét eins og ég veit ekki hvað undir lokin, en sé ekki eftir því.
Það er búið að vera algjör molla í dag og ég hef lítið getað hugsað og þess vegna verð ég að hryggja lesendur mínar með kveðjuatlotum núna.
Ari
Wednesday, July 22, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment