Saturday, December 22, 2007

Frunsa

Ég hef komið inná það í undanförnum bloggum hvað það er eitthvað firrt að vera hérna í Amsterdam þegar það er bókstaflega ekkert að gera. Til að toppa það þá hefur loftslagið hérna tekið miklum breytingum og loftið er kalt og þurrt, tilvalið fyrir varirnar á manni eða þannig.

Í morgun vaknaði ég svo með frunsu á efri vörinni. Tilvalin leið til að takast á við 5 klukkustundir af nær hlélausum æfingum. Þetta er auðsjáanlega kall á aðgerðir hjá líkamanum. Það er löngu kominn tími fyrir frí frá hljóðfærinu. Það er samt hollt að þurfa að spila á tónleikum þegar líkaminn er alls ekki í standi til þess. Maður verður einhvern veginn að finna upp eitthvað til að leiða sársaukann hjá sér og bara spila. Það er ekkert sem bannar það að maður dópi sig upp en það sviptir mann samt svo miklu.

Tónleikarnir byrja klukkan átta á morgun en stundvísin í Hollendingum er þvílík að maður þarf að vera mættur klukkan hálf fjögur. Hef nú ekki heyrt aðra eins vitleysu í langan tíma en hvaða rétt hef ég til að gagnrýna menningu þjóðarinnar sem ég hef nú einu sinni kosið að nema hjá.

Eftir tónleikana verður svo smá partý til að kveðja mig. Fólk á erfitt með að sætta sig við að það muni ekki sjá mig fyrr en á næsta ári.

Uppáhalds sjónvarpsþátturinn minn eins og er er Football Hooligans, International. Enskur sjónvarpsmaður og stuðningsmaður West Ham ferðast um heiminn og kynnir sér heim boltabullna og þeirra venjur. Í þættinum í kvöld var hann í Póllandi. Í þessum þáttum sér maður greinilega hvað sum lönd eru bara ekki alveg eins þróuð og önnur. Atvik sem gerðust inná völlunum voru í líkingu við það sem áttu sér stað á englandi á níunda áratugnum. Sæti rifin upp og hent í lögregluna og lögreglan svaraði með piparúða sem að sjálfsögðu var ekki til að róa mannskapinn. Áhangendur heimaliðsins voru búin að sauma saman trefla hins liðsins, sem þeir voru búnir að stela mánuðina á undan, í stóran fána sem var svo brenndur. Leikurinn fór samt fram á meðan eins og ekkert væri við það að athuga að 70 metra eldveggur væri á grindverkinu sem aðskildi stuðningsmenn við fótboltamennina. Ótrúlegt.

Jæja

No comments: