Saturday, December 1, 2007

Kvöldverður á la Grímur

Í kvöld hefur íbúð okkar breyst úr því að vera þægilegt heimili í að vera vettvangur kvöldverðarboðs. Grímur er búinn að leggja drög að eftirminnanlegu kvöldi og ég tók til í herberginu mínu. Það tók nú sinn tíma get ég sagt ykkur.

Ég byrjaði á ítarlegri greiningu á fyrsta þætti ófullgerðu sinfóníu Schuberts. Hvernig hann felur undirliggjandi hljómfræðina er hrein og tær snilld. Það kemur líka fyrir eitt andartak þar sem hann setur sig í spor þá ófædds Stravinsky og fellir saman hljóma. Í þessu tilviki þýskan fimmsexundarhljóm í G og sjöunda hálfminnkaðan af E sem hann leysir svo á e fullminnkaðan sem að framhaldi verður að A forsjöundarhljómi sem stefnir á d-moll og heldur svo áfram í fimmundarhring. Það er sem Schubert sé að gera grín að vestrænni klassískri tónlist. Hálfendirinn sem á að auðkenna lok brúar fyrir annað stef kemur ekki fyrir fyrr en annað stefið er löngu byrjað. Hann sprengir upp hefðbundna sónötuformið og verður því aðeins líkt við Scherzóið í 5. sinfóníu Mahlers hvað glæfralega tilburði varðar. En þetta virkar.

Scubert var einungis 25 ára þegar hann samdi þetta verk og á þeim tíma var hann í sífelldri endurskoðun og sjálfsgangrýnin var í hámarki. Á 3 árum þarna um kring liggja hvorki meira né minna en 4 ófullgerðar sinfóníur og hundruð minni verka.

Matarlyktin er að komast á fullt skrið núna og garnagaulið er farið að yfirgnæfa hugsanagang minn.

Tjá

No comments: