Þá er maður loksins kominn heim til sín. Flaug til landsins á þorláksmessu, en sá dagur verður þurrkaður út úr minninu vegna taps Barcelona fyrir Real Madrid.
Á aðfangadag komu amma og afi af Flókagötunni í mat til okkar og var það mjög skemmtilegt. Pakkaoppnunin verður helst minnst fyrir það að hann bróðir minn fékk ansi flottan síma á meðan ég fékk Heineken sólgleraugu.
Í gær, jóladag, fór ég venju samkvæmt að spila í messunni á Landspítalanum. Held það hafi verið sett nýtt met en 3 þurftu að gefast upp.
Eftir messuna var farið í árlegt jólaboð til ömmu og afa þar sem ég verð að játa að ég borðaði ekki yfir mig. Verður að koma fram að ég borðaði ansi stóra rjómatertu sneið á landspítalanum.
Í dag er svo enn eitt jólaboðið en nú er komið að föðurfjölskyldunni. Byrjað verður klukkan 3 á leik Liverpool-Derby en það mun síðan þróast í glæsilegan málsverð.
Ætla að segja þetta gott í bili.
Wednesday, December 26, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
„Heerlijk helder Heineken!“
Post a Comment