Í gær voru lokatónleikar jazz-klassíska brass verkefnisins. Allt í allt voru fernir tónleikar, 3 á þriðjudag og einir í gær.
Þetta var rosalega gaman og gestakennararnir, Mogens Andresen og Torben Puggard frá Köben, voru hreint út sagt magnaðir.
Eftir tónleikana í gær fórum við svo á Pompa og fengum okkur nokkra bjóra. Um klukkan hálf 7 fóru flestir að fá sér eitthvað að borða en ég, Mogens og Torben röltum á annan bar og héldum áfram bjórþambinu. Kenneth, Jos og Raymond bættust svo í hópinn þegar líða tók á kvöldið.
Um klukkan 1 eftir miðnætti fór ég svo heim með Kenneth, missti af síðasta sporvagninum til Diemen, og gisti hjá honum.
Það var nú ansi skrautleg nótt.
Festi varla dúr vegna of mikils áfengismagns í líkamanum og að sjálfsögðu neyddist líkaminn til að nýta hæfileika sinn til að losa sig við óæskileg efni. 3svar sinnum neyddist ég til að bregða mér í hlutverk vörubílsstjóra heima hjá Kenneth.
Dreif mig af þeim sökum heim um leið og almenningssamgöngurnar byrjuðu að ganga aftur en átti eina samverustund eftir með klósettskálinni áður en allt var komið út.
Verð að muna það í framtíðinni að borða eitthvað yfir daginn. Borðaði bara eina samloku í gær og hálft snickers.
Í dag í Low Brass tímanum vorum við með gervi prufuspil. Perry var í dómnefndinni og ætlaði að taka ákvörðun um það hvort maður kæmist í næstu umferð í alvöru prufuspili.
Spilanlega séð þá fékk ég hæstu einkun af nemendunum en vegna einhverra ástæðna þá gleymdi ég að spila æfingu sem ég átti að gera og var felldur af tæknilegum ástæðum.
En nú er matur.
Thursday, December 6, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment