Ég hef ekki verið jafn duglegur að æfa mig í langan tíma eins og ég var í dag. Ég fékk 2 munnstykki til reynslu frá tónastöðinni í dag. Bach 5GB og 5GS. Bæði mjög góð og eru þau bara svona hefðbundin básúnumunnstykki. Ég hef verið að spila mest á Denis Wick og Lindberg munnstykkin undanfarin ár en þau eiga það sameiginlegt að vera með keilulaga bolla í stað kúlulaga eins og Bach. Það að sjálfsögðu hefur mikið að segja um tóninn. Brúnin á Bach er líka ávalari en á hinum. DW er ansi flatt en Lindberg er ansi skarpt. Allt skiptir þetta máli. Ég held barasta að ég festi kaup á 5GS þó ekki væri vitlaust að kaupa B líka þar sem það munnstykki býður upp á mjög dökkan tón sem er tilvalinn þegar maður er til dæmist að spila aðra eða þriðju básúnu. Mið og lága registerið með því munnstykki er ekkert mál en maður þarf að nota vöðvana aðeins of mikið fyrir háa registerið, fyrir minn smekk. Með 5GS er registerið allt vel viðráðanlegt. Hæstu nóturnar eru fallegar í laginu og mikið kjöt í botninum. Myndi kannski ekki kötta í gegnum sinfóníuhljómsveit en ef ég þarf á því að halda þá er ég með Lindberg munnstykki sem er sér hannað fyrir þess konar sýndarmennsku.
Er núna að skrifa á tölvuna hans pabba, makkann. Mig dauðlangar í svona tölvu. Myndi sætta mig við minni gerð reyndar. Það er svo ótrúlega mikið sem hægt er að gera á svona tæki, besti kosturinn er náttúrulega að það er hægt að taka þetta með sér hvert sem er. Það er gallinn við borðtölvurnar, þær eru bara á sínum stað.
Vona bara að ég fái einhverja almennilega vinnu næsta sumar og eyði laununum í tölvukaup ef almættið lofar.
Ég þreytist nú seint á að dásama það hvað það er gott að vera hérna á Íslandi. Að sjálfsögðu skiptir miklu máli að ég er hérna í fríi og þarf ekkert að gera nema að sofa, borða, horfa á sjónvarp, rústa bróður mínum í Pro og æfa mig. Síðan er náttúrulega ansi gefandi að sofa út þegar Haraldur þarf að mæta í vinnu klukkan hálf átta. Held að ég hafi verið við það að sofna þegar fjölskyldan fór á fætur í morgun.
Var að finna forrit í þessari tölvu þar sem hægt er að taka myndir með myndavélinni sem er fyrir ofan skjáinn. Tók slatta af myndum og mikið afskaplega get ég verið myndarlegur þegar ég legg það á mig, þó ég segi sjálfur frá. Er ekki málið að vera með gott sjálfstraust.
Það var til dæmis í einum Star Trek TNG sem ég horfði á í gær ef ég man rétt. Þá átti Wesley að fá sitt fyrsta tækifæri til að leiða hóp af rannsóknarmönnum sem voru allir eldri en hann. Hann var ekki með neitt sjálfstraust en Riker sagði honum bara að svo lengi sem hann liti út fyrir að hafa sjálfstraust þá yrði allt í lagi. Manni líður líka betur sjálfum.
En jæja, ég nenni varla að blogga lengur í dag.
Saturday, December 29, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment