Sunday, April 13, 2008

Beethoven 5

Var að koma heim eftir að hafa spilað fimmtu sinfóníu heyrnalausa meistarans annan daginn í röð. Ansi krefjandi að spila þennan part svona á hverjum degi þegar maður er annars ekkert mikið að spila á alt básúnuna.

Veðrið er gjörsamlega frábært eins og er, smá skömm af því að hafa eytt deginum mestum annað hvort í loftkældu tónlistarhúsi í Ede eða í óloftkældri lest til og frá Amsterdam.

Það eru einhverjar framkvæmdir í gangi á lestateinunum milli Amsterdam og Utrecht þannig að ferðin til Wageningen sem venjulega tekur klukkutíma tók rúman einn og hálfan tíma. Þrír tímar í lest á einum degi er kannski aðeins of mikið, sérstaklega þegar það er þriðja daginn í röð.

En samt jákvætt að maður hefur nægan tíma til að hlusta á tónlist þegar maður er í lest. Veit ekki hvað ég er búinn að hlusta mikið en það er ansi mikið.

Þó klukkan sé bara rúmlega átta þá er ég kominn í náttfötin. Svo sem ekkert annað í gangi hérna hvort sem er, allir einhvers staðar annars staðar eða uppteknir. Ætla meira að segja að panta mér pizzu, Albert er lokaður á sunnudögum hérna í Diemen þannig að ekki gat ég keypt mér neitt ódýrara.

Svo sem í lagi að panta sér pizzu einu sinni í mánuði.

Ég hef verið að reyna að þjálfa hjartað í mér í að slá sem fæst slög á mínútu. Það er nú erfitt. Náði samt hjartslættinum niður í í kringum 30 slög á mínútu fyrir tónleikana í dag. Það er voða hreinsandi eitthvað að íhuga svona smá, ná algerri slökun. Ja, ekki algerri en á minn mælikvarða er það ansi mikið.

Kominn tími á smá sjónvarpsgláp. Sunnudagar eiga helst að vera þannig allan daginn að mínu mati, en ekki láta það fara lengra ;)

1 comment:

Anonymous said...

Eru þessar hjartaæfingar ekki stórhættulegar?