Fylgdi Mörtu út á flugvöll í dag. Á eftir að sakna hennar meðan hún verður á Spáni næstu 2 vikurnar. Í kvöld bauð ég svo Fraukje í heimsókn og við horfðum á fyrsta hluta LOTR. Komst að því að hún er forfallinn Tolkien fíkill eins og ég, gaman að horfa á myndina með einhverjum sem ann viðfangsefninu jafn mikið og ég geri.
Úrslitin í Lindberg keppninni voru fyrr í dag, er enn ekki búinn að frétta hver vann. Er með krosslagða fingur Hakan í vil. Veit ekki alveg hvort ég ætti að senda Jörgen sms og spyrja hann.
Góða nótt.
Sunday, April 6, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment