Tuesday, April 8, 2008

Dagur 2 í fríinu

Það verður að segjast að það er óttalega skrýtið að vera hérna þegar enginn skóli er og hvað þá þegar flestir vinir manns eru einhvers staðar annars staðar. Varð dáldið einmana í gærkvöldi en þá bjargaði Katrín mér og við spjölluðum heillengi á Skype.

Í kvöld er mikilvægur leikur í Meistaradeildinni, síðari leikur Liverpool og Arsenal. Hann verður sýndur í hollenska sjónvarpinu þannig að ég þarf ekki að eyða pening í barferð, get horft á hann í þægindum stofunnar.

Sömu sögu er að segja af Barcelona leiknum annað kvöld, get horft á hann heima hjá mér.

Ég held ég æfi mig ekki meira í dag. Er einhvern veginn ekki nógu mótiveraður til þess að spila meira, er nú búinn að skila góðu dagsverki nú þegar. Ég hef enga trú á því að pína eitthvað fram, allt verður að flæða.

Ég hvet fólk til þess að horfa á Sunnudagskvöld með Evu Maríu sem var sýndur síðastliðin sunnudag. Píanóleikarinn Víkingur Heiðar var gestur þáttarins og hafði mjög athyglisverða hluti fram að færa. Svo gaman að sjá hvað margir hlutir eru honum svo eðlilegir sem aðrir þurfa að vinna mikið fyrir að ná.

Úff, spenningurinn vegna leiksins er orðinn svo mikill að ég er byrjaður að skjálfa.

Fór loksins með jakkafötin mín í hreinsun, fæ þau til baka á föstudaginn. Þessi sparifatamál mín eru búin að liggja á mér eins og mara undanfarið. Ég vil helst nefnilega ekki eyða peningum nema ég þurfi þess nauðsynlega. Og núna um næstu helgi þarf ég að notast við jakkafötin og þess vegna ekki hægt að fresta hreinsuninni lengur.

Ég verð að játa að ég hef orðið fyrir dálitlum vonbrigðum með veðrið hérna í Hollandi í vetur. Það er ekki beint hægt að segja að hlýnun jarðar hafi skilað sér hingað. Það er nú kominn apríl en samt er innan við tíu stiga hiti. Væri nú alveg til í að vera með Mörtu í Valencia núna, en þar er víst 25 stiga hiti og heiðskýrt.

Jæja, það þýðir víst ekki að kvarta yfir veðrinu.

Kjúklingur í sætri chili sósu í kvöld með kartöflum og salati. Vona að það takist betur en kjúklingaréttur gærkvöldsins sem var víst aðeins of lengi óhreyfður á pönnunni.

1 comment:

Anonymous said...

Krónan er að hressast gagnvart evru. Þá dressar þú þig nú upp!