Landlordinn minn hann Max ákvað að kíkja í heimsókn þótt stutt væri og kom hann færandi hendi, þar að segja með nýja skrifborðsstóla. Hann er vænsti karl og gott að hitta hann loksins, en samskipti okkar hafa verið einskorðuð við tölvupóst hingað til.
Fór í tíma til Ivan í morgun. Það gekk bara vel, hann benti mér á nokkur smáatriði sem mér hafði yfirsést í mínum eigin æfingatíma. Glöggt er gests augað eins og orðtækið segir svo eftirminnilega.
Ég er farinn að hristast all svakalega út af undanúrslitunum í Meistaradeildinni nú á þriðjudag og miðvikudagskvöld. Mun því miður ekki geta horft á allan leik Barcelona-Man.Utd vegna æfingar með Ísafold. Það sem maður fórnar nú fyrir listina.
Einhver leiði í mér eins og er, þess vegna er ég svona fáorður í þetta skiptið. Bæti úr því síðar,
Friday, April 18, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
hæ - bíðum eftir að fá þig heim!
Post a Comment