Wednesday, April 9, 2008

Je beibí

Þetta var ótrúlegur dagur hvað spilamennsku varðaði. Byrjaði að spila um klukkan 12 og er búinn að vera að alveg þangað til núna, 5 tímum síðar. Í pásunum horfði ég á brot af Christian Lindberg DVD disknum þannig að ég var allan tímann með hugann við hljóðfærið. Nú hins vegar er mikilvægt að ofgera sér ekki og þess vegna er ég hættur í dag en ótrúlega ánægður með frábært dagsverk.

Núna stendur til hjá mér að fara í smá göngutúr en veðrið lítur ansi vel út, veðurguðirnir hafa greinilega tekið nöldrið mitt til sín um daginn. Síðan er bara að ákveða hvað verður í kvöldmatinn, eitthvað gott svona í takt við góða skapið og væntanlegan sigur Barcelona í kvöld í meistaradeildinni.

Kannski ég skelli mér bara á steik, æ kannski ekki alveg nógu spennandi að elda steik fyrir einn. Jæja, finn út úr því. Gaman að hugsa svona upphátt meðan maður bloggar. Ég reyndar geri mikið af því, að hugsa upphátt. Mér finnst það mjög gefandi og ég reyni að vera með nokkra mismunandi karaktera í gangi á sama tíma, maður þarf á mikilli einbeitingu að halda til þess að gera það vel og það er ekkert nema gott.

Ég horfði á Back to the future 1 og 2 í gær og horfi á þriðju myndina í dag. Það er nett skemmtilegt að horfa á bíómyndir sem voru gerðar áður en maður fæddist þó ekki muni mörgum árum. Gefur manni vissa innsýn inní menninguna sem var ríkjandi á þeim tímum.

Nú verð ég að hundskast út áður en veðrið breytist til hins verra.

No comments: