Friday, May 30, 2008

Bissí vika

Þessi vika sem nú er að líða er búin að vera fáránleg. Við erum með tónleika í básúnukvartetnum á sunnudaginn og byrjuðum að æfa síðasta mánudag. Erum búnir að vera með 2 eins og hálfs til tveggja tíma æfingar á hverjum degi. Fyrir utan það hef ég æft mig töluvert sjálfur og síðan hafa verið spilatímar. Varirnar eru aðeins byrjaðar að láta á sjá, en þetta er samt bara mjög gaman.

Ég fór í tíma til Ivan í morgun og hann tókst stórkostlega. Ivan var mjög ánægður með hvernig ég spilaði og sagðist nú ekki hafa neinar áhyggjur af mér ef ég héldi áfram á sömu braut. Eftir smá dilemmu undafarnar vikur þá var þetta svei mér tímabært.

En já, þessi vika er búin að vera svakaleg. Þegar maður lætur varla niður hljóðfærið í 10 tíma þá verður maður dáldið lúinn. Og ég er það núna og ætla barasta að fara í rúmið.

En ég fer glaður í rúmið.

2 comments:

Anonymous said...

Bara kveðja frá Glasgow :o)

Anonymous said...

Hæ - þín var saknað í öllum útskriftarveislunum. Hefði verið hátíðlegt að fá smá lúðrablástur!