Þessa viku er ég búinn að vera á heimalandinu í smá fríi frá amstrinu í Amsterdam. Þetta er búið að vera alveg frábært. Ég hef getað hitt flesta sem ég vildi hitta og mér tókst að nota fríið til að miðla af reynslu minni í básúnufræðunum.
Laugardaginn 24. febrúar kom ég til landsins og beint á fína tónleika með HTR þar sem fyrrum kærasta mín Sólrún var að brillera sem einleikari. Það var að sjálfsögðu partý eftir tónleikana og var bara fínt að mingla við gamla samnemendur og Gunnstein. Það var síðan vínarball í LHÍ síðar um kvöldið en þá var ég algjörlega búinn á því og var sofnaður fyrir miðnætti.
Þessum dögum á landinu hef ég eytt af mestu leyti í rúminu með tölvuna til taks, alltaf gaman að nördast aðeins á básúnuvefjum heimsins og síðan til að kóróna allt þá kynntist ég ansi skemmtilegri stelpu sem ég er búinn að tala reglulega við í gegnum msn og skype.
Ég fór á æfingu með LR á þriðjudagskvöldið og auðvitað tók ég lúðurinn með og blés bassapartinn mér til skemmtunar og öðrum til eyrnaverkja. Það er með ólíkindum hvað ég er farinn að spila sterkt eftir að ég byrjaði að læra í Amsterdam, enda ekkert nema bassabásúnuleikarar og Edwardsleikarar (sem ég set nú stundum í sama flokk) í kringum mig.
Ég hitti báða fyrrum básúnukennara mína þessa daga sem ég hef verið í Reykjavík. Jón Halldór og Sigga. Ég gekk nú svo langt og hitti Jón á meðan hann var að kenna. Hlustaði á hann coacha trompet tríó, gaman af því. Síðan talaði ég heillengi við Odd í símann um ýmsar pælingar um skemmtilegar samspilspælingar fyrir básúnunemendur.
Á miðvikudagskvöldinu heimsótti ég Grím. Það var nú fjör sem endaði ekki fyrr en við gerðum jafntefli í Scrafle, þrjúhundruð og eitthvað vs. þrjúhundruð og eitthvað. Það er alltaf gaman að hitta þennan indæla dreng sem er nú vonandi að koma að læra í Amsterdam næsta vetur.
Laugardagurinn var dagur hláturs og gráturs. Gráturhlutinn einkenndist af töpum hjá bæði Liverpool og Barcelona. En hláturhlutinn er tilkominn vegna masterclass sem ég hélt fyrir áhugasama nemendur á básúnu. Það tókst bara mjög vel upp og var gaman að sjá hvað þeir sem komu voru fljótir að skilja það sem ég sagði og bæta því inní spilamennskuna. Mín nálgun á básúnuna einkennist uppá síðkastið á reglulegum öndunaræfingum, söng og yoga. Básúnan er bara rúsínan á pylsuendanum. Virkja hugann til að yfirvinna líkamlegar takmarkanir. Ég á nú kanski eftir að setja inn færslu sem fjallar nánar um það.
En nú er alveg frábært frí á enda runnið og á þriðjudag verð ég að vera mættur í tíma í CvA klukkan 17:00, verð örugglega ógeðslega þreyttur, en svona er lífið.
Tuesday, March 6, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Já þessi stelpa er nú svolítið skondin. Gott að þér líkar vel við hana ;)
Frábært að þú hafðir það gott heima á besta landinu, Ísland er náttúrlega best í heiminum!
Kveðja frá Norge...
Post a Comment