Saturday, March 17, 2007

Myllur

Alltaf sér maður alltaf nýtt í þessu landi.

Í dag spilaði ég á árshátíð myllueigenda á safni hér í Amsterdam. Eins gleyminn og ér er þá á ekki að koma á óvart að ég er búinn að gleyma hvert nafn safnsins er. Ég var partur af básúnutríói, Johan og Rolf spiluðu líka. Við spiluðum í 5 mínútur og fá greiddar 75 evrur hver fyrir. Ekki amalegt tímakaup :)

Korka ætlar að halda uppá afmælið sitt í kvöld. Hún á reyndar ekki afmæli fyrr en á morgun, sunnudag, en af augljóslegum ástæðum heldur hún uppá það í kvöld. Stelpurnar eru á útopnu í eldhúsinu en ég sá um ís og bjór innkaup auk þess að kveikja á gasloganum þegar á þarf að halda.

Ég ætla nú samt að yfirgefa teitið rétt á meðan Recrativo, lið Pongolle, tekur á móti Barcelona. Ég hlakka til að sjá franska sóknarmanninn sem er í láni frá Liverpool. Mér finnst alltaf jafn skrýtið að verið sé að tala um að kaupa einhverja rándýra framherja þegar einn snillingurinn er í láni frá liðinu. Það á bara að fá hann aftur.

Um daginn þá gisti André hjá mér eftir smá fagnað eftir kammerprófin. Við duttum inní galdramyndbönd á youtube og hér er eitt svoleiðis. Ég hef mjög gaman af svona sjónblekkingum. Þetta er nú mjög svipað því að spila á hljóðfæri. Maður verður að sannfæra þá sem á horfa að maður sé að gera þetta í alvöru þrátt fyrir að allt sé í plati. :) Ef maður lýgur af miklum sannfæringakrafti þá hlýtur fólk að telja það vera sannleik.

Mér finnst alltaf gaman að ljúga, segja lygasögur og selja þær. Ég reyni að nota sömu aðferð þegar ég spila. Ég er þá bara að segja lygasögu eftir einhvern annan. Það gengur ekki upp nema maður gjörþekki verkið. Því nær maður einungis með greiningu.

Ætli ég verði ekki að sýna smá meiri lit í undirbúningnum fyrir þetta teiti áður en ég fer á barinn. Leikurinn byrjar eftir innan við klukkutíma.

Ble

1 comment:

Anonymous said...

Tad styttir mer stundir ad lesa bloggid titt her i hangsinu i Boston. Sendi Ragnheidi afmaelisoskir! - H