Þá er stóri dagurinn runninn upp. Barcelona-Real Madrid í kvöld.
Í gær var afmælispartý hjá samnemanda mínum og góðri vinkonu Korku. Það var haldið einhvers staðar lengst í austrinu. Það tók tæpan hálftíma að hjóla þangað. Annars var partýið bara stórfínt og betra en ég hafði þorað að vona, aðallega André að þakka.
Þegar við fyrst komum á staðinn var ég nú ekki upplitsdjarfur. Ekki einn einasti brassleikari fyrir utan mig. Loes kom síðan nokkru síðar og þá var nú loksins hægt að tala við einhvern um eitthvað sem maður hafði vit á. Mér til mikills létti bættist André síðan í hópinn.
Ekki gerðist nú mikið í partýinu, engin slagsmál, engin ofdrykkja, bara glens og gaman. Ég og André yfirgáfum staðinn uppúr 3 og fengum okkur franskar kartöflur á egypskum grillstað með eiganda sem kvartað sífellt yfir því að það væru of margir Arabar í Hollandi. Þá leið leiðin heim til André og borðuðum við frönskurnar af bestu lyst og síðan hjólaði ég heim um hálf 5.
Það var nú ævintýri. Ég hafði mjög litla hugmynd um hvar ég væri í Amsterdam þannig að ég bað André að lýsa mér leiðina heim á leið. Hann útbjó í skyndi kort sem var það vitlausasta sem ég hef augum litið. Vinstri var í raun hægri og upp var niður. Eða kannski var ég bara svona vitlaus. Það tók mig allavega um 40 mínútur að komast heim og hjólið mitt var með einhver leiðindi allan tímann.
En þetta var í gær og dagurinn í dag verður án efa mun merkilegri. Hlakka til að heyra í Benna Hemm Hemm sem verða með tónleika klukkan hálf átta í kvöld. Og svo liggur leiðin á sportbarinn fyrir stórleik ársins. Ég vona að Eiður fá séns eftir góða frammistöðu gegn Liverpool. Þá vona ég líka að Ronaldinho verði orðinn fullfrískur.
En best að gera eitthvað að viti núna. En svona í lokin þá rakst ég á þetta í gær :)
Ble
Saturday, March 10, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment