André Jensen
Suzanne Graat
Suzanne er árgerð 87 af kvenkyns trompetleikara. Henni kynntist ég snemma skólaárs þegar hún spurði mig hvort ég vildi spila með henni í kammerverkefni. Ekki gat ég neitað svona sakleysisaugum. Þessi stelpa er reyndar stórskemmtileg. Brassleikari í húð og hár en getur verið dömuleg þegar það á við. Það er alltaf gaman að tala við hana því hún hefur svo unaðslega tæran hlátur, sem verður til þess að maður verður að einhverju hirðfífli í kringum hana.
Laura KraleLaura er nýrri gerð af Suzanne. (Úff, talandi um að hætta að tala um kvenmenn sem hluti.) Hún er algjört augnayndi en þar fyrir utan hefur hún þvílíkan húmor sem fær útrás yfirleitt þegar maður er nýbúinn að fá sér bjór. Laura er algjör sjarmör og heilsar manni alltaf með brosi ættuðu úr himnaríki. Hún er opin stelpa og fyrirmyndar brassleikari. Henni fannst Tópas vodkinn góður og er það stór plús í kladdann.
Þetta er nóg í bili af þeim ástæðum að ekki má nú kynna of mikið af fólki í einu og þá óumflýjanlegu staðreynd að ég er ekki með myndir af öðrum vinum mínum inni á tölvunni. Því verður komið í lag hið fyrsta.
Ble
2 comments:
Sæll brósi, þetta eru ótrúlega myndarlegir einstaklingar sem þú umgengst og ég get ekki beðið eftir að koma út og hitta þessa meistara
Líst vel á þessar stúlkur Ari!
Post a Comment