Nú er pizzan kominn af stað í meltingarkerfinu og ég nýbúinn að horfa á South Park þátt þar sem gert var grín af hlýnun jarðar. Klukkan er 20:48 en þrátt fyrir það er dagurinn búinn að vera langur. Vaknaði fyrir klukkan 8 í morgun og uppgötvaði mér til skelfingar að varirnar á mér voru sem lím. Það tók sinn tíma að vekja þær, þannig að ég gat ekki byrjað upphitun fyrr en hálf ellefu. Náði hálftíma áður en ég fór í undirleikstíma með Elizabeth.
Ég fékk að heyra í dag að ég á að spila í masterklassinum sem Rex Martin verður með í næstu viku. Ég á að spila fyrsta kaflann í Gröndahl. Þarf að þrífa rykið af því verki. Hef ekki æft það af neinni alvöru undanfarið. Mest orkan hefur farið í BACH fantasíuna sem byrjaði bara að hljóma ansi vel í dag.
Ég er byrjaður á nýju æfingakerfi. Ég spila í 10 mínútur í senn og tek mér svo 10 mínútna pásu. Endurtek leikinn í 2 klst. Yfir 2 klst spilar maður sem sagt í 1 klst. En maður er með hugann við tónlistina allan tímann. Maður spilar ekki nógu lengi í einu til að þreytast og fjöldi pása gerir það að verkum að einbeitingin helst allan tímann.
Ég hef loksins náð að berja því inní hausinn á mér að það er ekki gott að verða þreyttur í vörunum. Það gerist auðvitað við og við. En ef það gerist þegar maður er að æfa sig sjálfur þá er maður að gera eitthvað vitlaust.
Tími með Ivan eldsnemma í fyrramálið og klukkan 2 er æfing með CvA brassinu og svo annað kvöld tónleikar með KCO. Ljóðasinfónía Zemlinsky, hlakka til.
Þangað til næst,
:P
Thursday, March 22, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Þú ert allur í kerfunum; meltingarkerfi, æfingakerfi ...
Annars er það bara X-faktor á Bugðulæknum í kvöld! - Kerfi á þessu!
Post a Comment