Tuesday, December 18, 2007

Leti

Ég er stjarnfræðilega latur eins og er. Það eina sem liggur fyrir í þessari viku eru einhverjir tónleikar á laugardaginn.

Ég skellti mér nú samt á jólatónleika Jazz hljómsveitar Concertgebouw í gærkvöldi. Það var ótrúlega gaman. Flottir performerar og flotttar útsetningar á þekktum jólalögum. Loes dróg mig með sér á tónleikana en við grófum stríðsöxina á sunnudagskvöldið og ákváðum að halda uppá það með tónleikaferð. Jos var líka að spila með hljómsveitinni.

Plönum mínum um algjöran letidag í dag var kollvarpað af sellógyðjunni Mörtu. Hún hringdi í mig í dag og spurði hvort ég gæti ekki aðeins hjálpað henni með smá greiningu sem hún var í vandræðum með. Þar sem ég hafði nú ekkert að gera þá ákvað ég að slá til. Eins og hún er vön þá var hún að sjálfsögðu ekki búin að líta á nóturnar af Strengjakvartet eftir Dvorak í F. Þannig að ég greindi þetta meira og minna allt fyrir hana þó ég hafi nú reynt að kenna henni eitthvað í leiðinni. Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart að fólk í tónlistarháskóla þurfi að telja nóturnar til að finna út hvaða hljómur er í gangi. Að finna út hvort um er að ræða þýskan eða forsjöundarhljóm var gjörsamlega útilokað fyrir hana. En hún er með þesslags vaxtalag sem gerir það að verkum að maður samþykkir hvað sem er.

Eftir þessa nærri þriggja tíma hlélausa törn af ítarlegri greiningu var ég kominn með nóg af tónlist og tók næsta tramma heim og er þessa stundina að bíða eftir pizzu sem ég pantaði á netinu frá Dominos. Kannski ekki það allra hollasta en ég bara hef ekki orku í meira. Þegar ég tek þessi maníuköst í greiningu þá klára ég alla orku sem ég á og að sjálfsögðu gleymi ég að næra mig.

Það er reyndar alveg ótrúlega þægilegt að taka svona letidaga. Vakna bara þegar maður vaknar og taka sér góðan tíma til að fá sér morgunmat og horfa kannski á tvær heimildamyndir á national geographic í leiðinni.

Í gær skrifaði ég nú samt ritgerð um samskipti fyrir eitthvað fag í skólanum þannig að ekki halda að ég sé ekki að gera neitt. En ég hef alveg sleppt því að snerta á básúnnni í 2 daga núna. Og það er frábært. Maður verður að vinna upp smá hungur.

En nú er Frasier að byrja og pizzan ætti að fara að koma hvað á hverju.

Þangað til næst.

Og Haraldur, þú gefur mér eitthvað sem ég vil og ég gef þér eitthvað sem ég vil.