Wednesday, January 2, 2008

Gleðilegt nýtt ár

Það er komið miðnætti á nýársdag, það kemur samt ekki í veg fyrir að flugeldabrjálæðingarnir haldi ekki áfram að klára byrgðirnar sínar. 

Ég var í rúminu mestan hluta dagsins. Svaf til þrjú og lagði mig svo eftir það. Það var notalegt.

Horfði svo í kvöld á Narníu með mömmu og pabba en fór svo niðrí skóla að spila smá. Ég er alveg harðákveðinn að kaupa munnstykkið Bach 5GS. Það smellpassar. 

Það hafa eflaust allir sagt eitthvað um skaupið en það ætla ég ekki að gera. 

Þurra loftslagið á Íslandi er farið að segja til sín, er með krónískan varaþurrk eins og er. Set samt eins lítinn varasalva á mig og ég get enda er það ekki til að bæta ástandið til lengdar.

Æ er eitthvað svo blogglatur núna, vona að mér verði fyrirgefið það.

No comments: