Wednesday, December 12, 2007

Pabbi

Nú verð ég að byrja á því að biðja fólk afsökunnar á bloggleti minni. Ástæðan er heimsókn föður míns en hann kom til mín síðastliðin laugardag og fer ekki aftur fyrr en næstkomandi laugardag. Það er nú algjör sæla að þurfa ekki að hugsa um kvöldmatarmál í viku.

Það er reyndar eitt sem kom fyrir mig síðustu daga sem er alveg frábært, mér var boðið í heimagert kúrbítspasta á la Marlies.

Hún er fyrsta stelpan sem ég hef hitt í Amsterdam sem ég næ góðri tengingu við. Við höfum svipaðan húmor og hún tekur ekki allt of illa karlrembukenndum brandörum mínum, það er náttúrulega stór kostur að hafa húmor fyrir sjálfum sér.

Það kvöld fékk ég allavega ekkert samviskubit yfir því að missa af Barcelona og kvöldi með föður mínum. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað þetta var gaman.

Eastern Promises er heiti á mynd sem ég og pabbi fórum á í gærkvöldi. Hún er leikstýrð af Kronenberg ef ég man rétt og er Viggo Mortensen í aðalhlutverki. Í grófum dráttum fjallar myndin um rússnesku mafíuna í London og hættuna sem stafar af henni ef saklaus almúginn kemst inní hennar mál fyrir tilviljun. Sterk mynd sem skilur mikið eftir sig.

Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að Liverpool slátraði Marseille í Meistaradeildinni fyrr í kvöld. Ég, Pabbi og Dimas horfðum saman á leikinn heima í stofu í Diemen, Grímur slóst í hópinn við og við og gerði sitt ýtrasta til að halda með hinum, mér til mikillar skapraunar. Svona hluti hefur maður ekki í flimtingum.

Forleikurinn að leiknum var reyndar magnaður. Pabbi eldaði kjötmikla gúllassúpu af ungverskum ættum og bar fram með hvítlauksbrauði, sérvöldu víni og að sjálfsögðu graflax og hvítvín í forrétt. Ég verð nú að játa að vegna gamals ávana þá neitaði ég mér um rauðvínið og drakk kók með súpunni. Sumu getur maður bara ekki breytt.

Á laugardaginn snarminnkar í hópnum hérna heima. Pabbi fer heim og Grímur fer til London og síðan heim. Ég verð hérna viku lengur og flýg til Íslands á Þorláksmessu. Ætli ég kaupi bara ekki jólagjafirnar á Schiphol eða í fríhöfninni heima. Þarf nú ekki að kaupa voða mikið magn af jólagjöfum og með árunum verður æ auðveldara að finna gjafir handa fjölskyldunni. Ég gef pabba eitthvað sem mig langar í, gef Haraldi eitthvað sem mig langar í og gef mömmu eitthvað sem ég held að hana langi í.

Úff hvað ég væri til í að fara heim núna um helgina. Allt vegna einhverra heimskulegra jólatónleika þarf ég að vera hérna viku lengur. Það er ekkert að gera næstu viku fyrir mig. Ein aumingjaleg æfing og einir tónleikar þar sem ég er að spila jólalög í mislaglegum útsetningum. En ég get þá vonandi gefið mér tíma til að fínpússa Schubert greininguna mína og reyndar á ég eftir að snarskrifa eina ritgerð um samskipti eða samskiptaörðuleika.

Ég á enn eftir að samþykkja að ég hrjóti. Þetta er ansi skrýtið mál þar sem ég að sjálfsögðu heyri ekki drunurnar og vil að sjálfsögðu ekki hlusta á það bull að ég haldi öðrum vakandi þegar ég sef. Getur verið að það sé undirvitundin að verki hvað varðar svefnhagi mína. Ef ég held fólki vakandi þegar ég sef þá er best að sofa þegar fólk er vakandi á annað borð.

En nú er mamma byrjuð að tala við mig á msn og enginn friður til að halda áfram með bloggið.

2 comments:

Anonymous said...

Alveg hættur að blogga maður??

Anonymous said...

Við erum þá ekkert að breyta því að við gefum hvorum öðrum eitthvað sem okkur langar sjálfum í?