Sunday, April 6, 2008

Hakan Björkman

Hakan Björkman er sigurvegari básúnukeppninnar sem haldin er í nafni Christian Lindberg. Til hamingju Hakan.

Hakan er fyrsti básúnuleikari konunglegu óperunnar í stokkhólmi auk þess að vera aktívur sem einleikari þar fyrir utan. Ég hef fengið einn tíma með honum og ég fæ enn vatn í munninn þegar ég minnist tímans, vald hans yfir hljóðfærinu er svakalegt. Hann er meðlimur í Trombone Unit 2000, básúnugrúppunni sem Christian Lindberg stofnaði með nokkrum af fremstu básúnuleikurum skandinavíu. Fyrir Íslendinga er gaman að vita að Jessica Buzbee er líka partur af þeirri grúppu.

Ég er að komast á endasprettinn á 7. seríu DS9, það er síðasta serían sem ég hef undir höndunum og ég held barasta að hún sé sú síðasta bálknum. Ótrúlega spennandi eins og gefur að skilja.

Annar rólegheitadagur í dag en svo á morgun byrjar æfingatörnin mín. Eins margir klukkutímar á dag og ég hef orku til í 2 vikur. Eftir þann tíma kem ég til Íslands í nokkra daga til að spila með Ísafold, svo er það aftur til Hollands í nokkra daga áður en ég kem aftur til Íslands 10. maí fyrir síðasta undirbúningstímabilið fyrir sólókonsertinn með Sinfóníuhljómsveit Áhugamanna þann 18. maí. Eftir þá tónleika hef ég 3 vikur til að undirbúa básúnuprófið mitt en það fer fram þann 7. júní.

2 comments:

Unknown said...

Ég er ennþá að fagna sigri Hakans og skyldi engan undra enda er ég ötull stuðningsmaður og aðdáandi hans. en þetta er fyndið http://youtube.com/watch?v=wvqSaQ1yijs&feature=related

Anonymous said...

Gott að loks sjái fyrir endann á Star Trek!