Svona á lífið að vera. Æfði mig á hljóðfærið frá ca. 12 til að verða fimm með smá hléum. Líður ótrúlega vel og með mikið sjálfstraust. Held ég spili ekki meira í dag, nema þá kannski með æfingadempara eitthvað smávegis. Vil helst ekki trufla nágrannanna eftir klukkan hálf sex. Ég reyndar ætti nú að geta spilað með góðri samvisku alla nóttina því sumir nágrannar mínir eru ekki alveg að skilja hvernig á að lifa innan um annað fólk. Það glymur hip-hop tónlist úr einhverri íbúð hérna hvenær sem er sólahringsins. Eiginlega er þetta verra en hip-hop tónlist, meira svona diskótek tónlist, mikill bassi. Skil ekki alveg á hverju sumir eru, en það þýðir ekki að ég leggist niður á sama plan. Ég hef nú einhvern vott af samvisku.
Jæja, er að spá í að fara í smá göngutúr fyrir kvöldmatinn.
Monday, April 7, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
:)
Post a Comment