Því miður hef ég ekki getað notið veðurblíðunnar vegna tónleika sem ég þurfti að spila í Wageningen. Síðustu tónleikarnir með áhugamannahljómsveitinni og persónulega held ég að ég hafi aldrei spilað jafn vel á tónleikum með hljómsveit. Allt gekk upp og háa f-ið söng svo fallega að ég varð eiginlega hissa en mér tókst að halda einbeitingunni. Er sem sagt mjög glaður.
Ég lenti í því þrisvar í dag að rétt missa af lest, dyrnar lokuðust á nefið á mér í öll skiptin og lengdist ferðalagið ansi mikið við það. En veðrið var svo gott að iPod missirinn truflaði mig ekki neitt.
Marta er rétt ókominn frá Spáni, hún er lent og er sem stendur í lestinni á leið til Diemen. Það verður gaman að fá hana aftur heim, svona rétt áður en ég fer úr landi.
Skólinn opnar aftur á morgun eftir 2ja vikna frí í nýju húsnæði. Ég finn fyrir miklum spenningi og tilhlökkun hjá samnemendum mínum. Staðsetningin er líka miklu betri fyrir mig, tekur aðeins 20 mínútur að komast í skólann með almenningssamgöngum í stað 40 mínútna. Hagræðingin er mér í hag þessa stundina, og bætir aðeins fyrir gengisfall íslensku krónunnar.
Jæja, ætla að setjast útá svalir.
Sunday, April 20, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Æðislegt. - Njóttu blíðunnar og nýja skólans!
Post a Comment