Ekki byrjaði nú dagurinn í dag vel. Vaknaði við vekjaraklukkuna klukkan hálf níu í morgun en í stað þess að ýta á snooze takkann þá slökkti ég á vekjaraklukkunni og vaknaði ekki fyrr en um hálf 12. Hafði þá innan við klukkutíma til að taka mig til fyrir generalprufuna fyrir prófið. Það tókst samt og gekk æfingin vel.
Prófið gekk líka mjög vel. Loes var reyndar eitthvað að vesenast yfir því að hún hefði spilað nokkrar vitlausar nótur og sumt falskt. Ég var nú fljótur að segja henni að áhorfendur fyrirgáfu vitlausar nótur en þeir myndu ekki fyrirgefa manni það að vera leiðinlegur. Og ég sagði henni að það hefði verið gaman að spila með henni. Ætla mætti að það hefði kætt hana aðeins en nei, hún sat föst við sinn keip og lagðist í þunglyndi út af nokkrum nótum.
Að prófinu loknu lá leiðin í tíma til Ivans. Ég var nú óæfður frá því í síðasta tíma en samt hafði hann svo á orði að ég hefði bætt mig töluvert. Það komment hefur allavega bætt trú mína á hugarlærdóm. :P Við enduðum síðan á að spila Söng fyrir Lottu eftir Jan Sandström. Ivan á píanóið og ég á guðlega hljóðfærið. Þegar spilamennskunni var lokið sögðum við ekki neitt, þögn réði ríkjum í um mínútu. Þá rauf Ivan þögnina og sagði, vá. Annan eins sæluhroll hef ég ekki fengið síðan ég hlustaði á Mahler 4 með BPO og Sir Simon Rattle í Concertgebouw. Ivan var nú samt fljótur að ná mér niður á jörðina þegar hann sagði: "The last movement of BACH still sucks."
Úr básúnutíma lá leiðin beint greiningu á nýrri tónlist hjá Andre Douw. Við skoðuðum sinfóníu eftir Webern, annan kafla. Þema og tilbrigði. Við fengum innsýn inn í uppbyggingu 12-tóna tónlistar og upp hófust miklar samræður, ja kannski ekki samræður, um gildi listar í nútíma samfélagi. Einn strákurinn í hópnum er með Bachelor í heimspeki og var að segja frá lokaritgerð sinni þar sem hann velti vöngunum yfir tilgangi alls. Mjög athyglisvert en eins og venjulega voru bara tveir sem hlustuðu, ég og kennarinn.
Eftir greininguna gafst engin tími til að ná sér eftir Webern, lokaæfing hjá kvartetnum. Gekk bara ágætlega og held ég barasta að það muni ganga mjög vel á morgun. Ég og André borðuðum síðan aftur kvöldmat. Engin steik í þetta skiptið heldur hamborgari, franskar og tonn af salati sem varð afgangs frá í gær. André leyfði mér svo að heyra verk eftir sjálfan sig sem hann samdi fyrir Big Band og var það bara ágætis skemmtun.
En nú er mál að linni, þarf að undirbúa mig andlega fyrir morgundaginn sem mun líklegast enda á Lusthof í bjór.
Ble
Wednesday, March 14, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Frábært að prófið gekk vel :) Vonandi gegnur líka vel í dag ;)
Tu ert greinilega i studi. Gott ad heyra!
Kvedja ur solinni a Miami.
Post a Comment