Sunday, March 11, 2007

Messi lifir




Var að koma heim af barnum. Varð vitni af æsilegasta leik síðan Istanbul 2005. Messi skráði nafn sitt í sögubækurnar með þrennu. Barcelona var einum færri allan síðari hálfleikinn en samt héldu þeir bara sínu striki og sóttu mest allan tímann. Það kom klárlega í ljós í þessum leik að Barcelona leikmenn vantar enga fórnfýsi, skiptir kannski bara smá máli á móti þeir spila. Eiður kom inná undir lokinn og skilaði sínu ágætlega.

Ég er raddlaus sem stendur. Var duglegur að úthúða dómaranum þegar við átti og blóta á spænsku, ensku, hollensku, sænsku og íslensku. Vissir aðilar hefðu nú misst allt álit á mér, en svona er nú fótboltinn skemmtilegur.

Verð að finna mér eitthvað að gera.

Ble

2 comments:

Anonymous said...

Líklega hefður vissir aðilar jú alveg tapað sér að heyra þig blóta svona. Á ekkert að venja sig af þessum ósið???

Anonymous said...

Datt í hug að þú myndir ganga af göflunum - Verst að hafa þig ekki með okkar mönnum á Íslandi á svona stórum stundum!