Nú er formlega komið sumar. Síðastliðna nótt var klukkunni flýtt um heilan klukkutíma. Sem betur fer átti breytingin sér stað aðfaranótt sunnudags, ekki mánudags. Ég á nú afskaplega erfitt með að skilja þetta tímabrölt, lætur mann líta illa út. Vaknaði klukkan eitt í stað klukkan tólf.
Þessa dagana er hálsbólga að hrjá mig. Hef verið með hana nú í örugglega 5 daga. Það sem mér finnst samt merkilegt er að annars er ég í góðu lagi. Enginn hiti, enginn höfuðverkur og svo framvegis. Þetta hefur auðsýnilega áhrif á spilamennskuna þar sem öndunarvegurinn er þrengri og ég get af þeim sökum ekki andað eins mikið og ég þarf.
Í gærkvöldi varð ég fyrir opinberun er ég fór á tónleika RCO Brassins undir stjórn kennarans míns Ivan Meylemans. Þvílíkt sánd. Tónleikarnir byrjuðu með verki fyrir 2 brass grúppur eftir Giovanni Gabrieli. Hélt ég væri kominn til himnaríkis. Það var hrein unun að fylgjast með fjölbreytileika spilaranna og loks sýndu þeir sitt rétta andlit. Ég hef alltaf átt dáldið erfitt með að samþykkja brass deildina í Concertgebouw þegar þeir eru að spila með hljómsveitinni. Það er eins og stjórnendurnir vilji ekki heyra almennilegt brass sánd. Nú sýndu þeir allavega að þeir geta spilað með almennilegu brass sándi.
En opinberunin var að sjá Ivan stjórna. Hafði áður aðeins séð hann stjórna á myndböndum á netinu og í tímum hjá honum. Samskiptin við hljóðfæraleikarana voru frábær og handahreyfingar skýrar og nákvæmar en náðu þó að viðhalda músíkaliteti af hæstu gerð.
Jörgen spilaði ekki með. Örugglega með eitthvað gigg.
Ætla nú að kaupa mér eitthvað í morgunmat og kannski einhverja mynd á DVD og halda uppá hátíðleika sunnudagsins.
bless
Sunday, March 25, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Algjörlega sammála með þetta tímarugl, síminn minn vakti mig klukkan sjö í morgun til að segja mér að hann væri búinn að færa tímann fram um klukkutíma og ég var hálftíma að finna út úr því hvernig ég ætti að stilla hann til baka
hættur að blogga?
Neibb, bara eitthvað andlaus þessa stundina vegna mikils álags í skólanum
OK - bíð þá bara róleg!
Er þetta steindautt!?
Post a Comment