Monday, March 19, 2007

Vinir í Amsterdam

Nú er ég búinn að rækilega afsanna orð Korku um að það sé hægt bara hægt að fara fyrr að sofa ef maður ætlar að vakna snemma. Lagðist í bælið rúmlega tíu með viljastyrkinn í botni um góðan svefn. Tókst að sofna. Glaðvaknaði svo. Viti menn, klukkan var hálf 12 fyrir miðnætti. Þannig að kannski hafði Korka rétt fyrir sér. Ég hefði bara viljað sleppa við að vakna svona rosalega snemma.


Ég ætla að eyða smá tíma í að kynna aðdáendum mínum fyrir vinunum sem ég er búinn að eignast í vændisborginni Amsterdam. Njótið vel.




André Jensen




André bassabásúnunemi á síðasta ári ættaður frá Danmörku. Hann er á sínu fyrsta ári í Amsterdam en jafnframt sínu síðasta, nema hann leggi í Masterinn. Ég hitti hann í fyrsta skipti þriðja kvöldið eftir að skólinn byrjaði, á Lusthof. Við höfum verið mestu mátar og eldum stundum saman. Kveiktum nærri í húsinu eitt skiptið þegar við vikum frá olíulagðri pönnunni örskamma stund. André verður 29 ára seint á þessu ári og er þvílíkt gott að vera með dreng sem er svona lífsreyndur í sínum vinahóp. Við reynum að spila sem mest saman og byggjum hvorn annan upp andlega sem líkamlega. Han er en god dreng.





Suzanne Graat


Suzanne er árgerð 87 af kvenkyns trompetleikara. Henni kynntist ég snemma skólaárs þegar hún spurði mig hvort ég vildi spila með henni í kammerverkefni. Ekki gat ég neitað svona sakleysisaugum. Þessi stelpa er reyndar stórskemmtileg. Brassleikari í húð og hár en getur verið dömuleg þegar það á við. Það er alltaf gaman að tala við hana því hún hefur svo unaðslega tæran hlátur, sem verður til þess að maður verður að einhverju hirðfífli í kringum hana.


Laura Krale

Laura er nýrri gerð af Suzanne. (Úff, talandi um að hætta að tala um kvenmenn sem hluti.) Hún er algjört augnayndi en þar fyrir utan hefur hún þvílíkan húmor sem fær útrás yfirleitt þegar maður er nýbúinn að fá sér bjór. Laura er algjör sjarmör og heilsar manni alltaf með brosi ættuðu úr himnaríki. Hún er opin stelpa og fyrirmyndar brassleikari. Henni fannst Tópas vodkinn góður og er það stór plús í kladdann.

Þetta er nóg í bili af þeim ástæðum að ekki má nú kynna of mikið af fólki í einu og þá óumflýjanlegu staðreynd að ég er ekki með myndir af öðrum vinum mínum inni á tölvunni. Því verður komið í lag hið fyrsta.

Ble

2 comments:

Anonymous said...

Sæll brósi, þetta eru ótrúlega myndarlegir einstaklingar sem þú umgengst og ég get ekki beðið eftir að koma út og hitta þessa meistara

Anonymous said...

Líst vel á þessar stúlkur Ari!