Saturday, March 31, 2007

Hugur yfir líkama

Þegar ég lýt yfir vikuna sem var að líða þá eru ein skilaboð sem hljóma hvað sterkast í huga mínum núna. Hugarfarið verður að vera rétt.

Ég er þess fullviss um að allir hafa einhvern tímann hugsað á þann veg að það væri ekki möguleiki á að þeir gætu framkvæmt eitthvað. Það er bull. Allt er hægt og allir hafa það sem til þarf. Það tekur bara misjafnlega langan tíma.

Never Practise! Allways Perform!!!

Hve sönn er þessi orð. Hve oft hefur maður ekki fallið í þá gryfu að æfa sig með tóni sem er langt frá manns besta? Hve oft er maður oft að þessu til þess eins að æfa sig? Hvað svo sem verið er að gera þá á alltaf að gera sitt besta. Einhver gæti verið að fylgjast með.

Ekki hugsa!!

Það er innbyggt inní alla að vera sífellt að dæma sjálfan sig á meðan verið er að framkvæma eitthvað. "Æ, þarna kemur há nóta. Shit, þessi nóta var fölsk. Úff, ég vona að ég nái að spila þetta nógu hratt." Maður gerir bara sitt besta og hugsar ekki meira útí það á meðan því stendur. Þegar athöfninni er lokið er hægt að líta til baka og skoða hvað fór úrskeiðis.

? og !

Það eru til tvenns konar attack á hljóðfæri. Það er betra að spila ranga nótu sem hljómar ákveðið en rétta nótu sem hljómar óörugg. Spila hverja nótu með stóru upphrópunarmerki!!!!!

3 útkomur

Allt sem maður gerir er metið. Maður getur gert eitthvað sem er algjörlega sérstakt og framúrskarandi. Maður gerir eitthvað ásættanlegt. Síðan getur maður gert eitthvað óásættanlegt. Það á alltaf að stefna á að gera eitthvað sérstakt, ef það tekst ekki þá er það allavega ásættanlegt. Ef maður stefnir á að gera eitthvað ásættanlegt og mistekst þá verður það óásættanlegt. Alltaf skal setja markið hátt, ekki halda sig við meðalmennskuna.

Bad sounds can be made into good sounds. Silence can´t!!

Þó að eitthvað sé ekki fullkomið þá á samt að halda áfram að gera það þó að það hljómi illa. Maður bætir sig ekki ef maður sleppir því að gera það sem maður þarf að bæta sig í.

Never try.

Ef maður reynir að gera eitthvað þá er maður strax kominn með eitt stórt spurningamerki. Við viljum gera allt af sannfæringakrafti. Það tekst eða það tekst ekki.

Aldrei að biðjast afsökunnar þegar þið gerið mistök.

Enginn gerir mistök viljandi, þau gerast, annars væru engin mistök. Ef þið gerið mistök, Blame the conductor.

Venjist því að hljóma vel.

90% af tímanum sem varið er í að spila á hljóðfæri ætti að nýta í eitthvað sem maður getur þegar spilað. Þannig venjist þið því að hljóma vel og þegar kemur að tónleikum þá hljómið þið vel af gömlum vana. Margir virðast vera þeirrar skoðunar að ef maður hljómar ekki illa meirihlutann af tímanum þá er maður ekki að gera réttu hlutina. Hvað ef maður hljómar illa 90% tímans og svo koma tónleikar. Þá hugsar maður ekki um annað en hvað maður hljómar illa og nú er best að vona að maður hljómi vel. Efi á ekki að vera til.

Ekkert er erfitt.

Hver hefur ekki heyrt upptöku með frábærum hljóðfæraleikara og sagt við sjálfan sig: "Þetta er nú ekki flókið." Síðan sér maður tónlistina á nótum og missir andlitið. Haldið þið að Christian Lindberg hugsi alltaf hve erfið verkin séu sem hann spilar. Nei!!!!!!! Hann og aðrir frábærir tónlistarmenn hugsa: "Ég á bara eftir að kynna mér þetta" Ef maður segir við sjálfan sig að eitthvað sé erfitt þá er maður að búa sér til meira erfiði en fyrir.

Ætla að láta þessi gullkorn nægja í bili.

Ari

2 comments:

Anonymous said...

Vá þvílík speki, verð að lesa þetta aftur

Anonymous said...

Greinilega verið hugsað ýmislegt síðustu daga ;) Gaman að þessu, skemmtilegt að lesa eitthvað með innihaldi stundum ;)