Saturday, January 5, 2008

22 ára


Þar sem það er búið að festa mig í sessi inni á þrítugsaldrinum held ég að það sé tilvalið að reyna að setja sér einhver markmið til að bæta lífið.
Eftir að hafa hugsað málið töluvert álít ég að svefnvenjur mínar verði að taka smá breytingum. Það verður erfitt en það skal takast. Það verður að gera grein fyrir því að það að vakna fyrir klukkan 9 á morgnana fyrir mig er mjög skrýtið, og hvað þá að fara að sofa fyrir miðnætti. En hægt og hægt skal líkamsklukkan stillast í takt við mannlífið eins og það gengur og gerist yfirleitt.
Eitt annað sem ég þarf að bæta töluvert í mínu lífi er að borða alltaf morgunmat áður en ég fer út úr húsi, sama hve lystarlaus ég sé. Ósjaldan hefur morgunmaturinn og kvöldmaturinn verið ein og sama máltíðin. Það gengur ekki til lengdar að vinna á adrenalíninu einu saman.
Ég held það sé líka tilvalið að léttast smá. Það þarf að gera við hjólið og þegar ég byrja aftur á að hjóla í og úr skóla, tala ekki um í margra gráðu frosti þá ætti það að takast. Takmarkið fyrir maí er að grennast um 5 kíló. Ég ætla nú ekki að fara í stífa megrun en meiri hreyfing og jafnar matarvenjur ættu að geta skilað þessu.
En nú er nóg komið af framtíðinni. Nú verð ég að tala um daginn í dag. 
Ég var mjög sáttur við daginn í dag. Vaknaði upp úr hádegi eftir ansi mikinn næturlestur. Ég las Harry Potter í rúmar 5 klukkustundir áður en mér tókst að sofna. Sem betur fer kláraði ég bókina annars hefði ég orðið mjög fúll yfir því að vera svona lengi vakandi eftir að ég var kominn í rúmið og undir sængina. Klukkan 3 átti ég tíma í nuddi hjá Sigurjóni í Laugardalslauginni. Klukkutíma heilnudd og var það alger himnasæla. Ég er mjög stífur í vinstri öxlinni og rek ég það beint til básúnunnar. Ætti held ég að byrja að stunda smá sund úti í Hollandi til að liðka aðeins við öxlina. 
Eftir nuddið fór ég beinustu leið að æfa mig smá áður en leiðin lá niður í Iðnó í samkomu þar sem Ísafold var útnefnd tónlistarhópur Reykjavíkur borgar. Félagar úr Ísafold spiluðu sálm í útsetningu Schoenberg og var hljóðfæraskipanin ansi skemmtileg. Píanó, 2 fiðlur, stofuorgel og selló. Ansi magnað verk.
Þar hitti ég nokkra valinkunna einstaklinga. Og já, pabbi, Örn Magnússon vill fá að heyra í þér við tækifæri. Vissi að ég hefði gleymt einhverju. Það var fínt að spjalla smá við fólk sem þegar er búið að sanna sig í íslensku tónlistarlífi.
Eins og ég er nú vanur yfirgaf ég boðið áður en því lauk því mig kitlaði í varirnar til að spila meira og náði ég mjög fínni æfingaskorpu, númer 2 þann daginn. Síðan var það bara matur heima þar sem foreldrar mínir fóru fram úr sjálfum sér og buggu til dýrindis kjúklingarétt. 
Síðan var aftur farið niður í skóla til að æfa smá og gekk mér alltaf betur og betur því meira sem leið á tímann. Munnstykkið mitt nýja er ansi skemmtilegt en það er úthaldsfrekt og þarf ég að koma mér í töluvert betra form til að eiga einhvern séns á að gera einhverjar rósir á tækniprófinu. En ég kann allar nóturnar eða næstum því fyrir prófið þannig að málið er bara að gera úthaldsæfingar, sem geta verið ansi skemmtilegar ef vel er að farið.
Eftir þessa æfingaskorpu númer 3 fór ég svo að sjálfsögðu heim og dekraði þvílíkt við sjálfan mig á þann hátt að ég fór beint í vöðvaslakandi freyðibað með yfirskriftinni, good night´s sleep. Það lofaði svei mér góðu og aðeins klukkan hálf eitt var ég orðinn þvílíkt þreyttur og fór bara að sofa. En Adam var ekki lengi í paradís. Mér tókst ekki að sofna vegna yfirþyrmandi sársauka í þumalputta vinstri handar. Er enn að drepast. Þegar klukkan var orðin rúmlega þrjú og ég enn vakandi þá bara ákvað ég að gera eitthvað merkilegt við tímann eins og að blogga. 
Mér líður eiginlega eins og það hafi komist vökvi á milli liðamótanna í puttanum. Það allavega er frekar sárt að hreyfa hann yfir höfuð og þegar ég geri þumlahreyfinguna mína frægu þá er það nær óberandi, verst að hreyfinginn er kækur hjá mér eins og er og á ég erfitt með að gera ekki þessa hreyfingu nema með því að einbeita mér að því að gera eitthvað annað með þumlinum.
Ég ætla nú samt að rífa mig á fætur fyrir hádegi á morgun þó ég fái nú ekki þann nætursvefn sem ég var farinn að hlakka til að fá.
Annað kvöld er leikur í spænsku deildinni. Barcelona fer í heimsókn til Real Mallorca, helstu fréttirnar eru þær að Ronaldhinho er enn hálf meiddur og Messi er enn frá. Eiður ætti líklegast að fá tækifæri inni á miðjunni og Henry kemur líkast til inní liðið aftur eftir meiðsli og verður þá örugglega með Eto´o og Iniesta frammi. Ég allavega verð dáldið fúll ef Rijkard notar kjúklingina í staðinn. Þeir eru algjör undrabörn en ekki alveg tilbúnir í baráttuna enn sem komið er. Það verður að setja þá hægt og hægt inn eins og var gert svo vel með Messi fyrir 2 árum.
Liverpool mætir svo Luton í bikarnum á sunnudag. Þar er helsta spurningin sú hvort Alonso takist aftur að skora frá eigin vallarhelmingi. Gerrard verður ekki með vegna smávægilegra meiðsla. Eða kannski er hann bara hvíldur, var ekki alveg nógu skýrt á þeim netmiðli sem ég las fyrr í kvöld.

Það er greinilegt að skrif mín hafi haft róandi áhrif á þumalinn. Held ég hafi nú næga ró í beinum til að fara fljótlega að gera aðra tilraun til að festa svefn.

Vona að þið afsakið bloggleti mína í þetta skiptið,

1 comment:

Unknown said...

shit hvað ég er smeðjulegur á þessari mynd