Gærdagurinn var skemmtilegur. Mikið að spila og allt gekk mjög vel hjá mér. Það var reyndar mjög skrýtið að vakna klukkan hálf átta á laugardegi. Reynsla sem ég vil helst ekki endurtaka, en ég bætti það upp í dag með því að sofa til 10.
En að gærdeginum. Hápunkturinn hjá mér var að sjálfsögðu þegar ég stjórnaði básúnukórnum í Ave Maria eftir Bruckner við góðar viðtökur. Eitthvað hlýt ég að hafa gert vel því að strax eftir tónleikana fékk ég annað stjórnanda tilboð. Lokatónleikar hjá Margreet, hornleikara. Ég mun allavega stjórna öðrum hornkonsert W.A Mozart og hugsanlega hornkonsert eftir Jan Koetsier fyrir strengjasveit. Keypti raddskrána í gær og er byrjaður að greina Mozart. Tiltölulega blátt áfram form en inná milli gerir hann hluti sem passa ekki alveg inní normið. En við því er að búast þegar verkið er tileinkað hornleikara sem Mozart kallar asna, uxa og fífl.
Þegar dagskrá opna dagsins var búin lá leiðin til Korku. En hún var með pönnukökuboð. Við vorum 7 íslendingar þarna og það var bara notalegt. Góðar pönnukökur og meðlætið fer í sögubækurnar. Var kominn heim rúmlega átta og náði að taka til, horfa á Star Trek og byrja á greiningunni fyrir svefninn.
Klukkan eitt í dag kemur Marta til mín, ætla að hjálpa henni með greiningarverkefnið hennar og hljómfræðina. Hún er alveg bjargarlaus í þessu, greyið. Ég ákvað að láta hana koma hingað svo ég hefði góða og gilda afsökun til að taka til. Og hvort ég er búinn að taka til. Herbergið er sem nýtt, eða svona nærri því. Vil nú hafa smá heimilisbrag hérna. En ég ryksugaði og þurrkaði úr gluggakistunni og henti öllum gosdósunum og snakkpokunum og vínberjabökkunum.
Jæja, ætla að finna mér eitthvað að gera áður en barmgóði sellóleikarinn lætur sjá sig.
Sunday, January 27, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Gaman hjá þér!
Post a Comment