Flaug í gær. Einhver smá seinkunn á fluginu venga tæknilegra örðuleika en allt gekk annars bara vel. Tókst að sofna smá í vélinni sem stytti tímann töluvert. Var nú samt alveg að leka niður af þreytu þegar ég loksins komst heim. Ég náði nú samt að halda mér vakandi með hjálp Star Trek og kóks og fór ekki í rúmið fyrr en rúmlega 10.
Vaknaði svo í morgun um klukkan 5 og fór bara á fætur. Las dáldið í nýju bókinni, maður og elgur. Fékk mér morgunmat, í fyrsta skipti í langan tíma hérna í Diemen, sturtaði mig og tók lestina hálf átta og var kominn í skólann klukkan 8.
Þá tók við góð upphitun sem mér tókst að klára áður en greiningartíminn byrjaði. Við vorum bara 3 mættir þannig að formlegri kennslu var frestað til næstu viku.
Klukkan 11 var æfing með kvintettnum og Theo var að leiðbeina. Það var bara fínt og gekk vel.
Einni góðri æfingatörn náði ég svo áður en píanótíminn minn byrjaði klukkan 16:00.
Eftir hann rölti ég í Albert og keypti mér kartöflur og rif til að elda og hundskaðist svo heim eftir langan skóladag. Matseldin gekk vel og er ég vel mettur.
Fer nú fljótlega í bælið bara, orðinn ansi lúinn.
Jæja, ætla að horfa á smá Star Trek.
Wednesday, January 9, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment