Skólinn byrjar á fullu um leið og ég kem út. Reyndar byrjaði hann í dag, mánudag, en ég tók mér það bessaleyfi að framlengja fríið mitt um 2 daga. Á miðvikudag er fullur skóladagur og á fimmtudaginn verður rennsli á tækniprófinu sem mun fara fram þann 24. janúar. Á föstudag er tími með Ivan og síðar um daginn verð ég að vera með fyrirlestur um eitthvað sögulegt sem tengist básúnunni. Ég ætla að fjalla um muninn á notkun Schubert og Beethoven á básúnum.
Schubert notar draglúðurinn á töluvert áhugaverðari máta og er hann alger frumkvöðull í nettri skrifmennsku fyrir básúnur í sinfónískum tónbókmenntum.
Vekjaraklukkan mín mun hringja eftir rétt rúma 4 tíma þannig að ég held það sé tilvalið að reyna að sofna smá, og helst sem fyrst.
Næsta blogg verður skrifað í Diemen.
No comments:
Post a Comment