Tuesday, January 22, 2008

Heima í dag

Í gær voru eins og sem áður engin herbergi til æfinga í skólanum þannig að ég fór bara heim með básúnuna. Með æfingadempara að vopni spilaði ég alveg heillengi og varð aldrei þreyttur vegna skipulagðra pása. Ælta að hafa sama fyrirkomulag í dag, engir tímar hjá mér í skólanum, get verið heima.

Ég er búinn að vera svo mikið í skólanum að undanförnu að ég er kominn með nett ógeð. Þegar maður er frá morgni til kvölds á sama stað með takmörkuð viðfangsefni verður maður smám saman brjálaður. Og svo þegar maður kemur heim eftir langan dag hefur maður enga orku, hvað þá vilja, til að gera hefðbundin heimilistörf. En ef heimilisstörfin eru gerð í pásum frá æfingum þá tekur maður varla eftir þeim.

En, nú er kominn tími á upphitun.

No comments: