Er búinn að veikjast. Ekkert alvarlegt eins og er en vil ekki eiga neitt á hættu og tek mér smá frí. Marta var hjá mér í langan tíma í gær og tókst okkur í sameiningu að klára greininguna hennar. Ég fékk smá tækifæri til að leika mér smá með hljómfræðiverkefni hennar. Það var gaman en vó, ég er kominn úr æfingu. Sá var nú tíminn að ég gat gert svona verkefni í marga klukkutíma en nú var ég alveg búinn á því eftir tæpa 2 tíma.
Ég var búinn að hlakka til að fara í Advanced Rythm tímann. Synd að ég skyldi veikjast í nótt. Ég hefði nú hugsanlega getað farið samt sem áður, en það hefði held ég ekki orðið að neinu gagni. Ekki beint sögutími þar sem maður getur bara slakað á. Þetta eru með þeim aktívustu tímum sem maður lendir í. Erfiðar æfingar í langan tíma og ég er raddlaus eins og er og held ekki einbeitingu í meira en 2 mínútur núna.
Og nú eru 2 mínútur liðnar.
Ari
Monday, January 28, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Og nú eru tveir DAGAR liðnir! -
Post a Comment