Er enn hálfveikur. Hef lítið gert annað en að horfa á Star Trek, borða og gera hljómfræðiverkefni.
Fékk hringingu í dag þar sem mér var boðið að spila með Dutch Student Chamber Orchestra. 2ja vikna project í apríl. Vika af æfingum og 6 tónleikar. Hljómar ansi skemmtilega. Verður annað af tveimur hljómsveitarprojectum þessa árs. Verð líka, eins sorglegt og það er, að spila í óperuprojecti skólans í júní, Don Giovanni eftir Mozart. Svefn óperan.
Dimas er farinn með mest allt dótið sitt yfir á nýja staðinn.
Það er eitthvað verulega skrýtið í gangi með gas og rafmangsreikninginn fyrir janúarmánuð. Hann er jafn hár og í desember. Sem meikar engan sens þar sem Grímur kom ekki fyrr en 20. og ég og Dimas hímdum í kulda og vöskuðum varla upp. Mig er nú farið að gruna að það sé einhver gasleki. Gasnotkunin er miklu meiri en vatnsnotkunin, þannig að þá getur maður bara tengt það við eldamennsku. Og eldamennskan er nú ekki mikil. Þetta er stórskrýtið mál og óásættanlegt. Það er ekkert við því að segja að borga fyrir notkun en þegar maður þarf að borga fyrir eitthvað sem maður notar ekki þá er eitthvað verulega mikið að.
Eina skýringin sem ég sé í fljótu bragði er að Holland hefur lent í stríði við einhvern og gasverðið hefur sprungið.
Jæja, gera eitthvað annað.
Wednesday, January 30, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment