Veikur heima fjórða daginn í röð. Missti af öðrum tíma með Ivan og er ég mjög svekktur yfir því, ég var nú eiginlega búin að ákveða að fara í tímann hvernig sem mér myndi svo sem líða en eftir að vera með hitaóráð í nær alla nótt sá ég að ég myndi ekkert græða á því að fara í tímann.
Er orðinn ansi þreyttur á þessu heilsuleysi mínu þessa dagana, það er nú takmarkað hvað maður nennir lengi að horfa á star trek, liggjandi uppí sófa undir sæng og borða ávexti.
Ef ég man rétt þá kemur Grímur heim núna í dag, af því tilefni vaskaði ég upp. Ekki að ég hafi eitthvað meira spennandi að gera. Ég hef tekið eftir því að ég meira að segja að ég legg mig ótrúlega mikið fram við uppvaskið, er kannski á sama disknum í 5 mínútur, bara til að tryggja að hann sé nógu hreinn.
Jæja, ætla að leggjast undir sæng og bryðja hálsbrjóstsykur.
Thursday, March 20, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment