Í tilefni dagsins sá ég Steve Bennet staðferma þær grunnsemdir mínar um að hann væri fífl, alltaf gott þegar maður hefur rétt fyrir sér.
Síðar um daginn sá ég 17 ára Bojan leggja upp 2 mörk og skora 2 í sigri Barca.
Þar á eftir tók ég þátt í grillveislu Íslendinga jafnt sem Hollendinga rétt hjá Rembrantplein.
En best var þegar ég kom heim, vann í greiningarverkefni og hughreysti Mörtu áður en ég hvarf inní heim Star Trek.
Veðrið er fáránlegt, snjór yfir öllu. Eins og G-dúrinn í öðrum hornkonsert Mozart minnir þetta á einhvern sjúkan brandara en ég vona svo innilega að eins og hjá Mozart þá muni þessi afleiti einkahúmor taka fljótt enda.
Mér er ekki hlátur í hug.
Monday, March 24, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment