Ég og Marta fluttum mest allt drasl hennar til Diemen í dag. Það er hreint með ólíkindum hvurslags drasli stelpur geta hlaðið inni á heimili sín. 48 skópör og í kringum 250 ljósmyndir að undanskildu öllu make-up dótinu.
Jæja, ég mun hafa ótal tækifæri til að gera grín að henni í framtíðinni.
Til að fagna flutningunum fórum við út að borða á kínverskan veitingastað sem er hér í Diemen. Ótrúlega sætur veitingastaður og maturinn guðdómlegur.
Ég fór í partý í gær og var það bara allt í lagi. Var reyndar ansi þreyttur vegna stutts nætursvefns nóttina áður og í ofanálag þrenna tónleika fyrr um daginn. Staldraði ekkert of lengi við, kann heldur ekkert svo vel við mig í svona miklu margmenni. Það var varla pláss til þess að klóra sér í rassinum án þess að klóra rassi einhvers annars á sama tíma.
Er nokkuð ánægður með að hafa farið með Mörtu út að borða í stað þess að fara að horfa á Barcelona. Þeir töpuðu víst eftir að hafa komist 2-0 yfir. Ja, ekki geta þeir kennt Ronaldinho um ósigurinn til tilbreytingar, þó eflaust verður honum kennt um allt sem miður fer eins og ævinlega. Þessi herferð gegn manninum er svo ósmekkleg að ég fæ verk í puttana við að hugsa um þetta.
Jæja, kominn tími á Star Trek
Saturday, March 29, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Gott að heyra að fótbolti stjórni ekki alveg lífi þínu! - Svo er bara að losa sig undan Star Trek ...
Dót sem stelpur safna að sér... ekki allar stelpur sem betur fer, ji minn góðasti ekki á ég svona mörg skópör! ...en líklega til víða þrátt fyrir það ;)
Af hverju er ég samt eina manneskjan sem skrifar undir nafni hérna? Eiga þetta kannski að vera leynileg álit?
Hæ - rétt hjá þér Valborg. Hætti að hafa þetta nafnlaust!
ef maður er ekki tilbúinn til þess að láta nafn sitt við það sem maður segir á maður helst að segja ekki neitt.
Post a Comment