Liverpool vann og Torres er dýrlingur.
Torres skoraði sitt 26. mark á tímabilinu í leiknum gegn Inter og stefnir hraðbyri í það að verða sá útlendingur sem skorar flest mörk á sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni.
Ég reyndar horfði ekki á leikinn.
Þannig var nú málum farið að ég þurfti að spila á kammermúsíkprófi fyrr í kvöld og þegar því var lokið þá var svo ógeðslegt veður að ég bara varð að komast heim í náttfötin.
Ég kom við í Albert og keypti mér ódýrustu steik sem í boði var. Ég þurfti að gera mikið við hana til að hún yrði æt. Ótrúlegt að það sé boðið uppá svona kjöt. En hvað get ég verið að væla yfir því, ég valdi að kaupa kjöt á 2 og hálfa evru í stað þess að kaupa eitthvað almennilegt kjöt á 7 evrur.
Það er ekki heilsusamlegt að þurfa að spara.
Ég þurfti því miður að hætta við fyrirhugaða parísarferð mína um páskahelgina. Ég þarf að mæta í tíma til Ivan á föstudeginum og á að skila stóru greiningar verkefni í þriðjudeginum eftir páska. Ekki séns að ég geti farið í frí þá helgi. Því er nú verr og miður.
Lifi Torres!
Tuesday, March 11, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Forgangsröðunin er skýr: Fótbolti, matur og tónlist!
Þú ferð bara seinna til Parísar.
Hvernig GEKK svo í kammerprófinu?
Post a Comment