Saturday, March 15, 2008

Hómer

Í gærkvöldi eftir langan en góðan vinnudag langaði mig að hitta eitthvað fólk utan skólans, því miður þurfti fólk annað hvort að æfa sig, heimsækja mæður á sjúkrahús eða sofa. Ég sá því fram á það að eyða kvöldinu einn. Ég legg það ekki í vana minn að svekkja mig yfir einhverju og reyni að gera það besta úr hverri stöðu. Ég brá á það ráð að hafa Hómer kvöld. Horfa á sjónvarpið, nánar tiltekið Star Trek, og drekka bjór og borða kartöfluflögur.

Líkaminn minn hefur greinilega afvanist kartöfluflögum enda fæ ég mér þær eiginlega aldrei, ég gafst upp eftir eina lúkufylli. En bjórinn drakk ég auðveldlega og með góðri samvisku og tókst að klára kassann. Nú verður að koma fram að þessi kassi var keyptur þegar Jói var í heimsókn og aðeins 2 flöskur voru eftir, en ég kláraði þær með glæsibrag.

Ég fór svo í rúmið vitandi að ég hafði staðið mig ágætlega um kvöldið í bjórdrykkjunni og svaf vel og lengi. Því miður varð alsæla gærkvöldsins til þess að ég gleymdi að bursta í mér tennurnar, þannig að þegar ég vaknaði í morgun var tilfinningin sú að þörungafrumskógur væri búinn að festa rætur í tanngarði mínum.

Hagnaðarregla 285 ef ég man rétt hljómar einmitt þannig, "Öll góðverk mun verða refsað fyrir."

Veðrið er allt í lagi bara, öllu léttara en undanfarið en samt alskýjað.

Jæja, ég ætti að fá mér morgunmat.

Finn ekki úrið mitt,

Ari

No comments: